Eitt af grundvallargildum Flyover er virðing fyrir samfélaginu. Það er með stolti sem við styðjum við það fjölbreytta samfélag sem Ísland byggir og bjóðum upp á sérverð til almannaheillahópa sem við teljum deila með okkur ástríðu fyrir menntun, inngildingu og tengingu við samfélagið.
Með sérverði til almannaheillahópa gerum við Flyover upplifunina aðgengilegri fyrir stærri hóp – og leggjum okkar á vogarskálarnar til að þakka þeim sem á óeigingjarnan hátt hjálpa til við að skapa betra samfélag.
Til að nýta sérverð fyrir almannaheillahópa þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Hópabókanir: Breyta má eða afturkalla hópabókanir sem gerðar eru í gegnum söluteymi Flyover með 72 tíma fyrirvara. Sér í lagi þurfa breytingar til fækkunar í hópnum eða afbókanir að berast a.m.k. 72 tímum fyrir áætlaða heimsókn til að möguleiki sé á endurgreiðslu eða endurbókun. Aðrir skilmálar kunna að gilda um bókanir sem tengjast sérstökum tilboðum, pakkatilboðum, viðburðum, einkabókunum og magnkaupum á miðum.
Bókanir í gegnum þriðja aðila: Skilmálar þriðja aðila gilda um allar bókanir sem gerðar eru á vettvangi þriðja aðila eða samstarfsaðila. Flyover hefur ekki umsjón með slíkum bókunum og sér ekki um breytingar á þeim. Allar óskir um breytingar, afbókanir og/eða endurgreiðslu skal beina til þriðja aðila eða samstarfsaðila þann sem bókunin var gerð hjá. Flyover getur ekki gert breytingar eða endurgreitt bókanir gerðar í gegnum þriðja aðila eða samstarfsaðila.