Flyover heimsóknin þín byrjar á að þú tékkar þig inn á þeim tíma sem þú átt bókað. Ferðalagið byrjar svo á tveimur forsýningum, sem hvor um sig tekur um 6-8 mínútur. Forsýningarnar setja tóninn fyrir flugið framundan og kynna sögu og staðhætti. Að loknu stuttu öryggismyndbandi er komið að því að fara inn í flugsalinn sjálfann. Þar tekur þú á loft frammi fyrir 20 metra, kúlulaga skjá þar sem þú og magnþrungið myndefni verðið sem eitt. Í fluginu, sem tekur um 8-10 mínútur, situr þú í hreyfanlegum sætisbekk þar sem þú finnur m.a. fyrir vindi, vatns- og ilmúða. // Saman mynda mismundandi stig sýningarinnar heildarupplifun og gæða söguna lífi. Allt í allt er ferðalagið um 25-30 mínútur. // Við mælum með því að gera ráð fyrir rúmum tíma í heimsóknina. Gott er að gera ráð fyrir 40-60 mínútum ef þú ætlar að sjá eina mynd, en 90 mínútum ef ætlunin er að sjá tvær myndir. Þannig hefur þú nægan tíma til að tékka þig inn, upplifa sýninguna, njóta á kaffihúsinu okkar og skoða allt sem verslunin okkar hefur upp á að bjóða. // Athugið: Heildarlengd upplifunnarinnar er mismunandi eftir því hvaða mynd er valin.
Dagskráin í heild sinni tekur 25-35 mínútur. Innan þeirrar dagskrár eru nokkur skref sem saman mynda heildarmynd ferðalagsins þar sem gestir dýfa sér á kaf í landslag, sögu, þjóðsögur og anda áfangastaðarins.
Sýningar standa yfir allan daginn á opnunartíma Flyover og byrja að jafnaði á 15 til 30 mínútna fresti.
Já! Flyover er hannað til að henta gestum á öllum aldursskeiðum. Sumir af okkar helstu aðdáendum eru eldra fólk og ung börn. Öryggisins vegna þurfa þó allir okkar gestir að hafa náð 102 cm hæð.
Öryggisins vegna þurfa allir gestir að hafa náð 102 cm hæð. // Ekki er mælt með að barnshafandi konur taki þátt í sýningum þar sem áhorfendur eru á hreyfingu. Þótt hreyfingarnar í Flyover séu alls ekki harkalegar fylgjum við settum reglum og vörum barnshafandi konur við að taka þátt í sýningunni. // Flyover er hannað sem róleg og ánægjuleg upplifun sem hentar fjölbreyttum hópi fólks. Hins vegar er Flyover upplifun sem virkjar öll skynfæri og felur í sér hreyfingar og því má vera að hún henti ekki öllum. // Gestir sem eiga við að stríða verki í baki eða hálsi, hjartavandamál, flogaveiki eða ljósnæmi ættu ekki að taka þátt í sýningunni okkar. Taki þeir þátt er það á þeirra eigin ábyrgð. // Við mælum með að þú ráðfærir þig við heilbrigðisstarfsfólk ef þú hefur efasemdir um að Flyover henti þér. Starfsfólk okkar er einnig boðið og búið að svara spurningum svo að þú getir tekið upplýsta ákvörðun um þátttöku þína.
Þótt fæstir gestir finni fyrir óþægindum vegna hreyfinga í Flyover, jafnvel þótt þeir eigi það til að verða flugveikir eða lofthræddir, kann sýningin að angra einn og einn einstakling. Ef þú ert sérstaklega viðkvæm(ur/t) fyrir flugveiki eða lofthræðslu gætir þú viljað sleppa sýningunni. Ef þú ert í vafa þá getur starfsfólk okkar hjálpað þér að taka ákvörðun.
Já! Flyover er aðgengilegt fyrir fólk sem notar hjólastól bæði fyrir þau sem geta fært sig úr hjólastólnum og þau sem ekki geta það. // Gestir sem nota hjólastól geta aðeins tekið þátt í hreyfanlega hluta ferðarinnar ef þeir geta komist úr hjólastólnum í sætið hjálparlaust eða með aðstoð fylgdarmanneskju. Ef slíkt er ekki mögulegt geta þeir verið á pallinum og séð sýninguna þaðan undir handleiðslu flugleiðsögumanns. // Fylgdarfólk fatlaðra gesta borgar engan aðgangseyri en fylgdarfólk þarf engu að síður að vera með miða á sýninguna. Vinsamlegast hafið samband í síma 527 6700 til að við getum gefið út frían fylgdarmiða. // Athugið: Öryggisins vegna eru takmörk á því hversu margir gestir sem nota hjólastól komast á hverja sýningu. Við mælum því með að hafa samband við okkur með góðum fyrirvara til að bóka sýningartíma.
Gestir þurfa að standa í 20 til 30 mínútur og fara upp og niður stiga. Ef þú býst við að eiga erfitt með að standa í þennan tíma eða fara stigana skaltu hafa samband við flugleiðsögumann þegar þú kemur. Hann aðstoðar þig eftir fremsta megni með því að beina þér að sætum og haga því þannig að þú þurfir sem minnst að nota stigann eða, ef þörf krefur, aðstoðar þig við að nota lyftu.
Það eru engin þyngdartakmörk á sýningunni okkar. Sætin í tækinu eru svipað stór og sæti í flugvél, eða um 53 cm á breidd. Sætisbeltin eru allt að 157 cm. // Ef þú hefur spurningar eða efasemdir um að sætin henti þér láttu starfsfólkið okkar vita. Við hjálpum þér með glöðu geði.
Í sýningunni er farið yfir fjölda staða á Íslandi frá flestum landsvæðum. Valdir voru magnaðir og merkilegir staðir og margir þeirra eru staðir sem fæstir sjá á lífsleiðinni. Við vonum að myndin sé gestum ógleymanleg og sýni Ísland í nýju ljósi. Þrátt fyrir að Ísland hafi verið myndað þvert og endilangt þá var ekki mögulegt að hafa hvern einasta stað á Íslandi með.
Hægt er að kaupa miða bæði á netinu og í miðasölunni okkar. Þar sem sætafjöldi er takmarkaður á hverja sýningu mælum vð með að gestir kaupi miða fyrirfram. Þannig getur þú tryggt að þú fáir miða á tíma sem hentar þér.
Allar Flyover sýningarnar eru einstakar og eftirminnilegar. Það er því erfitt að klúðra valinu. Margir gestir okkar velja að byrja á því að sjá Íslandsmyndina, sér í lagi ferðamenn. Ef þú átt erfitt með að velja mælum við með því að bóka tvær sýningar. Þannig gerir þú meira úr heimsókninni í Flyover. // Nánari upplýsingar um sýningarnar okkar og dagskrá má finna undir flipanum "Sýningar" á vefsíðunni okkar.
Bókaðu Premium pakkann, sem inniheldur drykk, myndir og fleiri fríðindi. // Ef þú vilt fá enn meira út úr heimsókninni þá mælum við með að bóka tvær sýningar þegar slíkt er í boði. Ein algengasta umsögn gesta sem hafa heimsótt okkur er að þeir hefðu viljað að sýningin væri lengri. Með tvöfaldri sýningu lengirðu heimsóknina og gerir sem mest úr henni.
Smelltu hér til að bóka sýningartíma. Láttu vita af þér í miðasölunni þegar þú kemur og passaðu að koma með bæði staðfestingu á tímabókun og gjafabréfið sjálf. Gjafabréfið er staðfesting á því að greitt hafi verið fyrir miðann og án þess er ekki hægt að gefa út miða á sýninguna.
Við bjóðum upp á hópafslátt fyrir 10 manns eða fleiri. // Frekari upplýsingar má finna undir flipanum "Hópviðburðir" á vefsíðunni okkar. Þú getur líka haft samband við okkur og við hjálpum þér að skipuleggja hópferðina.
Flyover býður upp á alla helstu greiðslumáta, t.a.m. er hægt að bóka og greiða á vefsíðunni okkar. Vinsamlegast athugið að við tökum ekki við reiðufé. Eingöngu er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum á staðnum, hvort sem um er að ræða miðakaup, veitingar eða annan varning.
Þegar þú kaupir miða á netinu færð þú staðfestingartölvupóst. Í honum er tengill sem vísar á síðu þar sem þú getur breytt bókuninni allt að 24 klst. fyrir bókaðan tíma. Ef minna en 24 klst. eru í bókaðan tíma skaltu hafa samband til að fá aðstoð. // Hafðu í huga að allar breytingar eru háðar sætaframboði og allar beiðnir um breytingar þurfa að berast a.m.k. tveimur klukkustundum fyrir bókaðan tíma.
Bókanir sem gerðar eru í gegnum þriðja aðila lúta skilmálum þeirra. Flyover getur ekki sinnt breytingum, afbókunum eða endurgreiðslum fyrir slíkar bókanir. // Hafðu samband við fyrirtækið sem þú keyptir miðann af til að breyta bókun, afbóka eða óska eftir endurgreiðslu.
Flyover Iceland er á Grandanum, að Fiskislóð 43, 101 Reykjavík. Grandinn er lifandi hverfi, miðsvæðis í Reykjavík, þar sem þú getur fundið heilmikið við að vera. Gefðu þér aukalegan tíma fyrir eða eftir heimsóknina í Flyover til að kanna svæðið betur. // Kíktu á flipann "Staðsetning" á vefsíðunni okkar til að fá frekari upplýsingar.
Það er fleiri en ein leið til að komast í Flyover Iceland. Þú getur komið akandi en bílastæði við húsið eru gjaldfrjáls. Ekki er nema 15 mínútna gangur frá miðbæ Reykjavíkur út á Granda og því er göngutúr tilvalin leið. Strætisvagnar nr. 3 og 14 stoppa nálægt Flyover. // Yfir sumartímann bjóðum við upp á ókeypis skutlu út á Granda. Nánari upplýsingar um akstursleið og tímatöflu má finna á vefsíðunni okkar.
Já. Bílastæðin við húsið eru gjaldfrjáls fyrir gesti og eru ætluð til notkunar á meðan gestir njóta sýningarinnar.
Nauðsynlegt er að vera komin a.m.k. 15 mínútum fyrir bókaðan sýningartíma. Við mælum með að gefa sér enn betri tíma eða 20 til 30 mínútur. Þannig gefst tími til að slaka á og fá sér léttar veitingar á kaffihúsinu okkar fyrir sýningu. Þau sem mæta eftir bókaðan sýningartíma eiga möguleika á að fara á næstu sýningu sem laust er á en ekki er hægt að tryggja að laust sé pláss. Athugið að þau sem koma seint eða koma ekki eiga ekki rétt á endurgreiðslu miða.
Gerðu ráð fyrir að verja 40 til 60 mínútum í heimsóknina í heild. Ef þú ætlar að sjá tvær sýningar má gera ráð fyrir 90 mínútum í heimsóknina. // Við mælum með að gestir gefi sér góðan tíma hjá okkur. Kaffihúsið okkar býður upp á notalega stemmingu og góðar veitingar, útsýnið frá Flyover er frábært og Grandinn býður upp á ýmiskonar aðra afþreyingu og skemmtun.
Ef þú ert með miða með strikamerki þá getur þú farið beint að sýningarinnganginum, neðan við stigann. Ef þú ert með gjafabréf, voucher eða annars konar miða sem ekki er með strikamerki, þá þarftu að fara í miðasöluna. Starfsfólk okkar aðstoðar með glöðu geði og beinir þér í rétta átt.
Leyfilegt er að taka með sér litlar töskur eða veski, svo lengi sem hægt er að koma þeim fyrir í hólfinu undir sætunum. Öryggisins vegna biðjum við um að stærri töskur og aðrir lausamunir séu geymdir í tösku- og fatageymslu. // Starfsfólk í afgreiðslu hjálpar þér með glöðu geði ef þú ert óviss um hvort þú megir taka töskuna þína með.
Á kaffihúsinu okkar er boðið upp á fjölbreytt úrval drykkja, bæði áfenga og óáfenga, og ýmis konar mat og snarl. Þá má finna fjölbreytt úrval minjagripa í versluninni okkar, m.a. einstaka, handgerða muni eftir íslenskt listafólk.
Miðar í Flyover fást endurgreiddir allt að 24 klukkustundum fyrir bókaðan sýningartíma.
Vinsamlegast hafðu samband við okkur eins fljótt og auðið er ef þú sérð fram á að ná ekki til okkar í tæka tíð. Við gerum okkar besta til að aðstoða þig áður en þú kemur. Breytingar á bókunum sem gerðar eru samdægurs eru háðar sætaframboði og allar beiðnir um breytingar þurfa að berast okkur a.m.k. 2 klukkustundum fyrir bókaðan tíma. Þau sem koma of seint geta fengið aðgang að næstu lausu sýningu en er það algerlega háð sætaframboði og ekki er hægt að tryggja aðgang að sýningunni. Vinsamlegast athugið að þau sem koma of seint eða koma ekki eiga ekki rétt á endurgreiðslu.
Öryggisins vegna þurfa öll sem fara í Flyover að hafa náð 102 cm hæð. // Starfsfólk mælir hæð gesta áður en farið er inn á sýningarsvæðið og því miður þurfa þau sem ekki ná tiltekinni hæð frá að hverfa.
Til að tryggja öryggi gesta og umhverfisins áskiljum við okkur rétt til að gera öryggisleit á gestum og farangri þeirra. Hvers konar vopn eru bönnuð í og í kringum Flyover. Skotvopn, hnífar, kylfur, úðar, piparúðar, hnúajárn og rafstuðtæki eru bönnuð, auk hverra þeirra hluta sem starfsfólk Flyover telur að ógnað geti öryggi. Gestir sem hafa í fórum sínum bannaða hluti fá ekki aðgang að sýningunni og verður þeim gert að yfirgefa svæðið. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að geyma bannaða hluti í tösku- og fatageymslu Flyover.
Já! Þú getur keypt myndir eftir að heimsókn lýkur með því að skanna QR kóðann á myndamiðanum þínum. Ef þú hefur týnt myndamiðanum getur þú sent tölvupóst á info@flyovericeland.is með upplýsingum um dag og tímasetningu heimsóknarinnar og við hjálpum þér að finna myndirnar þínar. // Athugið að hægt er að kaupa myndir í allt að 30 daga eftir heimsóknina.
Við viljum gjarnan tengjast ferðaþjónustuaðilum! Þú færð allar frekari upplýsingar á ferðaþjónustu síðunni okkar og þar getur þú fyllt út fyrirspurnarform. Starfsmaður í söluteyminu okkar mun hafa samband við þig í kjölfarið og saman tökum við næstu skref.
Þú getur náð sambandi við okkur í gegnum "Hafðu samband" síðuna okkar. // Ef þú ert með ákveðið erindi, s.s. hópabókun, fjáröflun eða samstarfshugmynd, mælum við með að þú finnir viðeigandi vefsíðu þar sem þú getur náð sambandi við réttan aðila hjá okkur.