ÆVINTÝRA HÓPFERÐIN VERÐUR BETRI OG BETRI

Ferð í Flyover er svarið við því hvað á gera næst með hópnum þínum! Flyover er fullkominn áfangastaður fyrir alla hópa, hvort sem um er að ræða hópefli með samstarfsfólki, stórfjölskylduferð eða bara skemmtidag með vinahópnum. Hópafsláttur er gefinn þegar 10 eða fleiri bóka ferð í Flyover og á augabragði breytist hópferðin þín í ævintýradag sem fer lóðbeint í minningabankann.

Hópafsláttur er í boði fyrir 10 manns eða fleiri. Fylltu út formið hér að neðan til að fá frekari upplýsingar eða bóka hópferð. 

Hjá Flyover getum við tekið á móti 40 gestum á 15 mínútna fresti! 

ÞINN HÓPUR, ÞITT FLUG: EINKA FLYOVER UPPLIFUN

Taktu hópferðina þína á næsta stig og pantaðu einka Flyover upplifun. Þinn hópur, þitt flug!

Einka sætaröð

Hópurinn verður í sjöunda himni með því að taka frá heila sætaröð – bara fyrir ykkur! Hentar hópum sem telja allt að 20 manns.

Einka upplifun

Farðu alla leið með hópinn þinn! Þið fáið einka aðnot af aðgangssvæði, forsýningum og fluginu sjálfu. Fullkomið fyrir hópa sem telja allt að 40 manns.

Telur hópurinn þinn fleiri en 40 manns? Við reddum því! Heyrðu í okkur og saman finnum við út úr því að gera heimsókn hópsins ógleymanlega.

Nánari upplýsingar

Hópabókanir:  Breyta má eða afturkalla hópabókanir sem gerðar eru í gegnum söluteymi Flyover með 72 tíma fyrirvara. Sér í lagi þurfa breytingar til fækkunar í hópnum eða afbókanir að berast a.m.k. 72 tímum fyrir áætlaða heimsókn til að möguleiki sé á endurgreiðslu eða endurbókun. Aðrir skilmálar kunna að gilda um bókanir sem tengjast sérstökum tilboðum, pakkatilboðum, viðburðum, einkabókunum og magnkaupum á miðum.

Bókanir í gegnum þriðja aðila: Skilmálar þriðja aðila gilda um allar bókanir sem gerðar eru á vettvangi þriðja aðila eða samstarfsaðila. Flyover hefur ekki umsjón með slíkum bókunum og sér ekki um breytingar á þeim. Allar óskir um breytingar, afbókanir og/eða endurgreiðslu skal beina til þriðja aðila eða samstarfsaðila þann sem bókunin var gerð hjá. Flyover getur ekki gert breytingar eða endurgreitt bókanir gerðar í gegnum þriðja aðila eða samstarfsaðila.

Bóka hóp- eða einkaupplifun


back to top