Velkomin í fljúgandi kennslustofuna

Stígðu út fyrir hina hefðbundnu kennslustofu og upp til himins! Flyover býður nemendum spennandi leið til að sjá og upplifa okkar stórkostlega land sem og fjarlægari slóðir. Fljúgandi kennslustofan okkar vekur upp forvitni, dýpkar skilning og breytir venjulegri vettvangsferð í ógleymanlega ævintýraför. 

Fræðsla í boði

Flyover býður upp á fleiri en eina fræðandi sýningu hverju sinni en sýningarnar tæpa allar á mismunandi hlutum samfélagsfræði. Við skyggnumst inn í landafræði, sögu, hagfræði og menningarlæsi. Eftirfarandi sýningar eru hluti af Flyover upplifuninni:

  • Flyover Iceland – Flogið yfir jökla, firði og eldfjallasvæði um leið og við kynnumst íslenskri þjóðsagnahefð. (Sýnt allan ársins hring)
  • Wonders of the American West – Uppgötvið andann, landslagið og söguna sem skapaði amerískt samfélag.
  • Believe Chicago – Svífið yfir og dýfið ykkur í iðandi og orkumikið borgarlandslagið í einni af merkustu borgum Bandaríkjanna. 
  • Awaken Canada – Ferðist í gegnum afskekkta og athyglisverða útkima Kanada. Allt frá norðurheimsskauts túndrum að borgum við sjávarmál.
  • Call of the Canadian Rockies – Upplifið töfra fjalllendisins með augum frumbyggja Kanada.

Smellið á “Sýningar” í valmyndinni efst á síðunni til að sjá hvaða sýning er í boði fyrir skólahópinn þinn hverju sinni!

Skilyrði fyrir skólahópa

Til að njóta kjara sem ætlaðir eru skólahópum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Hópurinn þarf að koma frá íslenskum grunnskóla og honum þarf að fylgja kennari eða annar fylgdarmaður frá skólanum.
  • Fara þarf eftir reglum um fylgdarfólk.

Nánari upplýsingar

Fyrir hver 9 börn í skólahópum fær 1 fylgdarmanneskja frían aðgang að sýningu Flyover. Hver auka fullorðinn gestur umfram það greiðir sama verð og nemandi. 

Til fylgdarfólks telst hver sá fullorðni einstaklingur sem fylgir hópnum s.s. kennari, foreldri, sjálfboðaliði eða starfsmaður skóla.

Vinsamlegast fyllið út bókunarformið hér að neðan. Starfsmaður okkar mun hafa samband og staðfesta bókunina.

Hópar eru bókaðir á heila og hálfa tímanum. Til að upplifun hópa sé sem ánægjulegust er nauðsynlegt að mæta að minnsta kosti 15 mínútum fyrir áætlaðan flugtíma. Þá hafið þið tíma til að láta vita af ykkur, ná í miða fyrir hópinn og ganga frá hlutum í geymslu ef þörf er á.

Hópabókanir:  Breyta má eða afturkalla hópabókanir sem gerðar eru í gegnum söluteymi Flyover með 72 tíma fyrirvara. Sér í lagi þurfa breytingar til fækkunar í hópnum eða afbókanir að berast a.m.k. 72 tímum fyrir áætlaða heimsókn til að möguleiki sé á endurgreiðslu eða endurbókun. Aðrir skilmálar kunna að gilda um bókanir sem tengjast sérstökum tilboðum, pakkatilboðum, viðburðum, einkabókunum og magnkaupum á miðum.

Bókanir í gegnum þriðja aðila: Skilmálar þriðja aðila gilda um allar bókanir sem gerðar eru á vettvangi þriðja aðila eða samstarfsaðila. Flyover hefur ekki umsjón með slíkum bókunum og sér ekki um breytingar á þeim. Allar óskir um breytingar, afbókanir og/eða endurgreiðslu skal beina til þriðja aðila eða samstarfsaðila þann sem bókunin var gerð hjá. Flyover getur ekki gert breytingar eða endurgreitt bókanir gerðar í gegnum þriðja aðila eða samstarfsaðila.

Bóka skólahóp í svæðisbundnum skóla


back to top