Skilmálar vegna miðakaupa

Allir gestir sýningarinnar Flyover Iceland („Sýningin“) þurfa að lúta eftirfarandi skilmálum og skilyrðum:

Skilmálar vegna miðakaupa

  1. Endurgreiðsla: Miðar fást endurgreiddir allt að 24 tímum fyrir bókaðan tíma. Gera þarf ráð fyrir að það taki 5-7 virka daga fyrir endurgreiðslu að skila sér inn á það kort sem notað var við kaupin.
  2. Breytingar: Miðabreytingar (dagsetning og/eða tímasetning) eru leyfðar og eru í boði í samræmi við bókunarstöðu. Allar beiðnir um breytingar þurfa að berast a.m.k. tveimur klukkutímum fyrir bókaðan tíma. 
  3. Mætt of seint eða ekki mætt: Allir miðar renna út og ógildast á komudegi. Mögulegt er að gestir sem koma seint komist að á næstu sýningu sem laust er á en ekki er hægt að tryggja aðgang. Gestir sem koma seint eða koma ekki eiga ekki rétt á endurgreiðslu eða miðabreytingu.  
  4. Hópabókanir:  Breyta má eða afturkalla hópabókanir sem gerðar eru í gegnum söluteymi Flyover með 72 tíma fyrirvara. Sér í lagi þurfa breytingar til fækkunar í hópnum eða afbókanir að berast a.m.k. 72 tímum fyrir áætlaða heimsókn til að möguleiki sé á endurgreiðslu eða endurbókun. Aðrir skilmálar kunna að gilda um bókanir sem tengjast sérstökum tilboðum, pakkatilboðum, viðburðum, einkabókunum og magnkaupum á miðum.
  5. Bókanir í gegnum þriðja aðila: Skilmálar þriðja aðila gilda um allar bókanir sem gerðar eru á vettvangi þriðja aðila eða samstarfsaðila. Flyover hefur ekki umsjón með slíkum bókunum og sér ekki um breytingar á þeim. Allar óskir um breytingar, afbókanir og/eða endurgreiðslu skal beina til þriðja aðila eða samstarfsaðila þann sem bókunin var gerð hjá. Flyover getur ekki gert breytingar eða endurgreitt bókanir gerðar í gegnum þriðja aðila eða samstarfsaðila.
  6. Endursala á miðum Flyover er óleyfileg. Ef grunur leikur á að miði hafir verið endurseldur má neita miðahafa um inngöngu á sýninguna eða honum vikið úr húsi án þess að miðinn sé endurgreiddur.


Almennir aðgangsskilmálar

  1. Hægt er að kaupa staka miða eða miða fyrir hópa. Vegna takmarkaðs sætaframboðs á sýningunni er ekki alltaf hægt að tryggja að allir í hópnum geti setið saman.
  2. Allir sem koma á sýninguna þurfa að borga aðgangseyri áður en sýningin hefst, nema Flyover heimili að vikið sé frá þessum skilyrðum. Gestum er skylt að geyma aðgangsmiða sinn og sýna starfsfólki eða fulltrúum Flyover miðann sé um það beðið. Þeim sem reyna að fá inngöngu án þess að vera með aðgangsmiða kann að vera vísað frá sýningunni og/eða sýningarsvæðinu.


Flyover upplifunin

  1. Notast er við eftirtaldar tæknibrellur í Flyover-sýningunni: þoku, vind,  lykt, leifturljós og sæti sem hreyfast. Notkun þeirra er ekki samfelld, en þó að Flyover leggi sig fram við að tryggja vellíðan gesta er mælst til þess að fólk með undirliggjandi heilsufarsvandamál sem einhverjar af áðurnefndum tæknibrellum gætu haft neikvæð áhrif á, fari ekki á Flyover-sýninguna.
  2. Samkvæmt öryggisreglum okkar fá engir einstaklingar sem eru undir 100 cm að hæð aðgang að Flyover-sýningunni.
  3. Vegna stærða öryggisbelta á sýningunni, má vera að ekki sé hægt að tryggja öryggi gesta sem eru líkamlega stórir og/eða miklir um sig. Í slíkum tilvikum er miðaverð endurgreitt.
  4. Geyma þarf öll stór veski, bakpoka og aðrar töskur í fatahengi Flyover og hlíta öllum ákvörðunum Flyover í þeim efnum.  Gestir þurfa að taka alla aðra persónulega muni með sér og skilja aldrei við þá. Flyover tekur enga ábyrgð á tjóni, þjófnaði eða skemmdum á persónulegum munum sem gestir hafa í fórum sínum á sýningunni.
  5. Gestir þurfa ávallt að vera á afmörkuðum gestasvæðum og fylgja reglum og leiðbeiningum okkar hvað varðar heilsu og öryggi (samkvæmt tilmælum starfsfólks Flyover).


Umsjón með börnum

  1. Börn, 13 ára og yngri, þurfa að vera í fylgd einstaklings sem er 14 ára eða eldri á Flyover-sýningunni eða sýningarsvæðinu.
  2. Hver fullorðinn einstaklingur má að hámarki hafa umsjón með 9 börnum.


Hegðun og háttsemi

  1. Flyover áskilur sér allan rétt til að meina aðgang að eða vísa út af sýningunni eða sýningarsvæðinu öllum þeim sem:
    • sýna af sér hegðun sem er til þess fallin að draga úr öryggi eða ánægju annarra gesta að mati starfsfólks FlyOver Iceland;
    • eru ógnandi, móðgandi eða meiðandi í orði eða verki eða haga sér á nokkurn þann hátt sem er til þess fallinn að valda uppnámi;
    • eru eða virðast vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna
  2. Ekki má neyta utanaðkomandi matar eða drykkja á Flyover-sýningunni, á forsýningarsvæðinu, í anddyrinu eða á sölusvæðinu. Neyta má matar og drykkja á svæðinu sem er til þess ætlað fyrir eða eftir sýninguna.
  3. Reykingar eru stranglega bannaðar á sýningunni, á sýningarsvæðinu og annars staðar í kringum sýninguna. Undir reykingar fellur notkun á hvers konar sígarettum, vindlum, pípum, rafsígarettum og veip vörum en upptalning þessi er ekki tæmandi.
  4. Ekki má viðhafa óþarfa hávaða (til dæmis hávaða frá farsímum, útvörpum, hljómflutningstækjum eða öðrum raftækjum) á sýningunni eða í nágrenni hennar, né hegðun sem er líkleg til að trufla aðra gesti eða valda annars konar truflunum, slíkt varðar við tafarlausa brottvísun. Þetta á jafnt við um einstaklinga og hópa.
  5. Gæludýr og önnur dýr eru stranglega bönnuð á svæðinu (fyrir utan aðstoðarhunda fyrir blinda og heyrnarlausa). Aðstoðarhundar fyrir blinda og heyrnarlausa eru ekki leyfðir á sjálfri Flyover-sýningunni.


Áhætta og ábyrgð

  1. Hjá Flyover er okkur umhugað um að tryggja öryggi gesta. Til að koma í veg fyrir að farið sé með vopn eða aðra hættulega hluti inn á sýninguna fá gestir aðgang með því skilyrði að þeir heimili að leitað sé á þeim eða í föggum þeirra sé um það beðið. Vopn, flugeldar, reyksprengjur, glerflöskur, eldfimir vökvar og aðrir hlutir sem geta valdið meiðslum á fólki eru óheimilir á sýningunni.
  2. Flyover leitast við að tryggja að sýningin sé opin gestum á venjulegum opnunartíma. Flyover áskilur sér þó allan rétt, hvort sem er af öryggisástæðum eða öðrum ástæðum, til að loka sýningunni með eða án fyrirvara. Komi til slíkrar lokunar endurgreiðir Flyover öllum gestum sem áttu miða á þeim tíma sem óvænta lokunin átti sér stað. Flyover er ekki skaðabótaskyld að öðru leyti, t.d. hvað varðar ferðakostnað eða annan kostnað gesta, vegna lokunar á sýningunni eða hluta hennar.
  3. Flyover Iceland ehf, stjórnendur fyrirtækisins, starfsmenn eða umboðsaðilar bera ekki ábyrgð á nokkru tjóni, beinu eða óbeinu, hvernig sem það er til komið. Þar á meðal, en takmarkast ekki við, kvíða, óþægindum eða ótta vegna sýningarinnar og/eða rýmingar vegna bilunar eða slyss. Miðahafar gangast sjálfviljugir undir alla áhættu og hættu sem kann að fylgja Flyover-sýningunni, hvort sem er fyrir eða eftir heimsóknina eða meðan á henni stendur.
  4. Flyover eða aðilar á vegum Flyover kunna öðru hverju að taka ljósmyndir og/eða myndskeið og/eða annast annað eftirlit á sýningunni eða nágrenni hennar, þar sem gestir kunna að vera staddir. Með því að samþykkja þessa skilmála og skilyrði samþykkir þú að Flyover eða aðila á vegum Flyover sé heimilt að nota slíkar myndir um alla framtíð í hvers kyns kynningar- eða auglýsingaefni í hvaða formi sem er. Þú samþykkir enn fremur að höfundarréttur slíks efnis sé í eigu Flyover eða (eftir atvikum) aðila á vegum Flyover.


Varnarþing

  1. Þessir skilmálar heyra undir íslensk lög og skal túlka efni skilmálanna samkvæmt þeim. Ef upp koma ágreiningsmál skal málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

back to top